Ritstjórarnir ræða um fjárkúgunina

Það skortir ekki umræðuefnin þegar ritstkjórarnir koma saman í samnefndum sjónvarpsþætti á Hringbraut í kvöld enda sest þar niður fólkið sem rýnir manna gleggst í þjóðfélagsmálin á líðandi stundu.


Gestir Sigmundar Ernis í þættinum í kvöld eru þær Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ritstjóri Stundarinnar og Kolbrún Bergþórsdóttir ritstjóri DV ásamt Karli Th. Birgissyni ritstjóra Herðubreiðar en saman munu þau fjalla um fjárkúgunarmálið sem skekið hefur samfélagsumræðuna í allan dag, opinberar umræður um nauðgara sem farið hafa hátt í þjóðmálaumræðunni síðustu daga eftir að konur tóku að safna saman sögum sínum af kynferðislegu ofbeldi á lokað svæði á facebook og loks verður einnig vel því fyrir sér hvort hinn hefðbundni stjórnmálamaður sé að deyja út samhliða fjórflokknum gamla sem virðist vera kominn að fótum fram.


Ritstjórarnir eru frumsýndir klukkan 21.30 í kvöld. 


Smelltu til að horfa á þáttinn.