Ritstjórarnir lágu ekki á skoðunum sínum í samnefndum þætti á Hringbraut í gærkvöld, en þar fengu á baukinn fordómafullir prestar, fyrrverandi stjórnmálamenn á ríkisspenanum og sjálfur forsætisráðherra sem rann til á eigin tungu í útlöndum
Í Ritstjórunum eru helstu fréttamál líðandi stundar brotin til mergjar - og það var enginn skortur á umræðuefnum í gærkvöld. Sessunautar Sigmundar Ernis að þessu sinni voru Karl Th. Birgisson og Reynir Traustason sem hafa báðir marga fjöruna sopið á fjölmiðlum síðustu áratugi og voru þeir sammála um að svokallað samviskufrelsi presta, sem er umtalað í dag, og fjallar um meint leyfi sumra þeirra til að hafna hjónavígslu samkynja para, sé ekkert annað en fordómafrelsi. Það sé beinlínis galið að opinberir starfsmenn komist upp með að haga sér þvert á reglur og landslög í starfi sínu - og býsna undarlegt í sjálfu sér að boðberar kristninnar vilji og þrái beinlínis að mismuna fólki með þessum hætti.
Reynir Traustason ræddi Guðfinnumálið, en fyrrverandi þingkona Sjálfstæðisflokksins hefur fengið nærri 30 milljónir í þóknun frá tveimur ráðuneytum fyrir ráðgjafastörf án útboðs eða auglýsingar. Hann sagði að sukk af þessu tagi viðgengist vegna þess að almenningur kippti sér ekki lengur upp við svona ósköp, almenningur væri orðinn jafn samdauna spilltu embættismannakerfi og fyrir hrun - og ráðherrar kæmust sem fyrr upp með það að svara ekki spurningum sem að þeim væri beint vegna svona mála. Siðferðisþrekið væri smám saman að bresta, sem sæist meðal annars á því að \"góða fólkið\" sem vildi umbætur, meira lýðræði, frjálsræði, gagnsæi og mannúð væri nú úthrópað sem galna og \"vonda fólkið\".
Karl Th. Birgisson var gáttaður á ræðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra á nýafstöðnu þingi Sameinuðu þjóðanna þar sem hann lofaði 40% minnkun á losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi á næstu árum, án þess, að því er virtist að hafa hugmynd um hverju hann var að lofa. Enda hafi svo farið að Jóhannes útskýrari, eins og hann nefndi aðstoðarmann forsætisráðherra, hafi þurft að túlka ræðu ráðherrans fyrir þing og þjóð. Karl var ekki viss um hvort væri verra, að ráðherrann hefði ekki lesið ræðuna áður en hann flutti hana, eða að hann hefði lesið hana án þess að skilja innihald hennar. Reynir bætti því við að ráðherrann væri vanur að ljúga að þjóðinni, en nú væri hafinn útflutningur á lyginni.
Þeir félagar ræddu, ásamt Sigmundi Erni um yfirvofandi þenslu og merki um ofhitnun hagkerfisins, svo og illa meðferð á vinnuafli á Íslandi á sama tíma og landsmenn vildu aukin mannréttindi úti í heimi, en víða var komið við í þættinum eins og fyrri vikuna. Kannski ætti þjóðin að líta sér nær í þessum efnum.
Þátturinn er endursýndur í dag en einnig sjáanlegur í klippum á hringbraut.is og í heild sinni þar.