Ritstjórarnir: feðraveldið enn til staðar

Það vantaði ekki umræðuefni í Ritstjórana á Hringbraut í gærkvöld en þar var ekki síst talað um nauðgunarmálið í Hlíðunum og þátt Fréttablaðsins í þeirri hröðu atburðarrás sem varð til í fyrradag og endaði með fjöldamótmælum framan við Lögreglustöðina við Hverfisgötu.

Fanney Birna Jónsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins og Steingerður Steinarsdóttir, ritstjóri Vikunnar settust að þessu sinni á rökstólana með Sigmundi Erni og fóru yfir skrif Fréttablaðsins í þessu umdeilda máli, en þar var spurt hvort blaðið hefði farið of geist og hvort því bæri að biðjast afsökunar á innihaldi fréttarinnar. Fanney kvað svo ekki vera, ritstjórnin stæði við fréttina og ekkert í innihaldi hennar hefði verið hrakið, en vissulega ættu blaða- og fréttamenn alltaf að vanda sig og vera sjálfsgagnrýnir. Í þessu tilviki væri engin ástæða til að biðjast afsökunar á framsetingu fréttarinnar eins og lögmaður mannanna tveggja sem fréttin fjallaði um hefði farið fram á.

Í þættinum, sem hægt er að nálgast hér á heringbraut.is, var og rætt um muninn á ritstýrðum miðlum og stjórnlausum samfélagsmiðlum og hvort einhver möguleiki væri á því að hemja þá síðarnefndu þegar allt fer í háaloft í opinberu umræðunni, en Fanney Birna kvað það myndu verða ómögulegt; á þesum opna vettvangi yrði hver og einn að vera ábyrgur orða sinna, en enginn muni nokkru sinna stjórna því flæði upplýsinga sem þar streymir um opnar gáttir.

Þá var einnig rætt um kynferðisbrot og eðli þeirra og því velt fyrir sér hvaðan þau væru sprottin en ofbeldisfullu kynlífi hefur verið hampað á stöku stað í fjölmiðlaflórunni að undanförnu svo eftir hefur verið tekið - og sýnist þar sitt hverjum. Steingerður sagði ofbeldi á hendur konum að miklu leyti mætti rekja til karllægra gilda feðraveldisins; konum hefðu lengst átt að vera körlum undirgefnar og karlar hefðu lengst af og jafnvel ennþá talið sig eiga rétt á kynlífi með konum og þannig mætti túlka umræðuna um vændi; það væri ekki hægt að banna það af því karlar þyrftu að geta keypt sér þjónustu af því tagi. Hér skipti því hugarfarið mestu máli. 

Þá bar málarekstur á hendur hjúkrunarfræðingi sem er sakaður um manndráp af gáleysi á góma, svo og vörn Þjóðkirkjunnar og möguleika hennar á að fá sauði sína til baka, en þar taldi Steingerður mikilvægast að kirkjunnar þjónuðu hegðuðu sér í samræmi við boðskap kirkjunnar og sýndu í hvívetna umburðarlyndi, auðmýktar og kærleika sem nokkuð hefði á skort, ekki síst í afstöðunni til samkynheigðra og ofbeldisbrota kirkjunnar manna sjálfra.

Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld á Hringbraut.