Ritstjórar ræða muninn á bjarna og sdg

Misjöfn pólitísk staða Bjarna Benediktssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanna stjórnarflokkanna verður til umfjöllunar í Ritstjóraþætti kvöldsins á Hringbraut, en þar sýnist mönnum að ólíku sé saman að jafna.

Það eru Ingimar Karl Helgason og Jón Agnar Ólason sem setjast að þessu sinni á rökstóla með Sigmundi Erni og ræða erfiða endurkomu Sigmundar Davíðs í pólitíkinni hér á landi, en heimavígið virðist loga stafnanna á milli, allt frá Tröllaskaga að Vatnajökli og spurning hvort formaðurinn verði að fara að hugsa sér til hreyfings í pólitíkinni. Á allt öðrum stað er Bjarni Benediktssson hins vegar sem haldið hefur sínu striki og forðast litlu og óþörfu slagina á kjörtímabilinu og uppsker núna í ár með þeim hætti að kosningar þarf hann síst af öllu að óttast.

Önnur umræðuefni kvöldsins í fjörlegum þættinum er forsetaslagurinn og möguleikar Davíðs þar á kjöri, sömuleiðis erindi Viðreisnar í pólitíkinni, nýjar vendingar í Búnaðarbankasölunni og höftin sem líklega eru ekki á förum þrátt fyrir frumvarp þar að lútandi.

Ritstjórarnir eru frumsýnddir klukkan 21:15 í kvvöld.