Ritstjórarnir ræddu lærdóm hrunsins

Ritstjórarnir höfðu um nóg að tala í samnefndum sjónvarpsþætti á Hringbraut í gærkvöld, en þar var vitaskuld rætt um lærdóminn sem landsmenn hafa dregið af efnahagshruninu fyrir réttum sjö árum.

6. október 2008 er Íslendingum enn í fersku minni - og góð spurning hvort Guð hafi ekki blessað Ísland, svo sem beðið var um þennan örlagadag í lífi þjóðarinnar. Henni hefur tekist að krafla sig betur og fyrr upp úr feni kreppunnar en bjartsýnustu menn þorðu að vona - og er þar kannski því að þakka að Eyjafjallajökull gaus og allt fylltist hér á landi af ferðafólki, svo og makríl raunar líka á sama tíma í undirdjúpunum sem hefur auðgað sjóði landsmanna svo um munar, þótt óneitanlega skipti gríðarleg fjölgun ferðafólks hér mestu máli.

Í fyrri hluta þáttarins í gærkvöld var rætt um það hvort Íslendingar hafi lært eitthvað af hruninu og hvort þjóðarkarakterinn hafi eitthvað breyst, eða hvort landinn sé aftur kominn í sama farið og í bólunni fyrir hrun. Viðmælendurnir Björk Eiðsdóttir, ritstjóri MAN og Þórunn Elísabet Bogadóttir, aðstoðarritstjóri Kjarnans sáu öll merki þess að landsmenn væru farnir að haga sér á svipaðan hátt og einkenndi þjóðina þegar bólan .þandist hvað hraðast út; hagsýni og sparnaður hefði vikið fyrir skammsýni og stundareyðslu - og enn væru menn reiðubúnir í kjarabót sem sæist í núinu en væri ekki til framtíðar.  

Í seinni hlutanum var rætt um eitt af síðustu tabúunum í íslenskri umræðu, kynleiðréttingu fólks sem upplifir sig í líkama annars kyns en því finnst það tilheyra; hvernig gengur okkur að ræða þessa hluti hispurlaust - og hvernig eigum við að fara að því og hvaða orð ber að nota, hver ber að varast? Stöllurnar Björk og Þórunn Elísabet ræddu vítt og breitt um þetta athyglisverða efni, en í nýjasta hefti MAN er einmitt athyglisvert viðtal við Margréti Hrafnsdóttur, en einkasonur hennar og Jóns Óttars Ragnarssonar er kominn út úr skápnum sem transgender og býr sig undir kynleiðréttingarferli.

Ritstjórarnir eru frumsýndir klukkan 21:30 á þriðjudagskvöldum og eru endursýndir í allan dag, en einnig sjáanlegir hér á hringbraut.is.