Ritstjórarnir: vigdís á hálasta ís

Framganga Vigdísar Hauksdóttur, formanns fjárlaganefndar á fundi hennar með Páli Matthíassyni, forstjóra Landspítalans var eitt helsta umræðuefni Ritstjóranna á Hringbraut í kvöld. Hún fékk býsna lága einkunn hjá þeim.

Það voru ritstjórarnir Ingimar Karl Helgason og Steingerður Steinarsdóttir sem settust á rökstóla með Sigmundi Erni og veltu fyrir sér hvort þessi atkvæðamikli þingmaður hefði farið yfir strikið þegar helsti yfirmaður þjóðarspítalans var vændur um væl af meirihluta fjárlaganefndar á dögunum, en þeim orðum forstjórans að honum hefði verið misboðið og verið sýnd mikil ókurteisi á fundinum svaraði Vigdís um hæl með þeim orðum að þar sætti hún einelti.

Þáttinn má sjá hér á hringbraut.is.

Ritstjórarnir voru á einu máli að lágmark væri að nefndarfólk Alþingis og þá ekki síst formenn nefnda sýndu skoðunum nefndargesta virðingu, en svo hefði greinilega ekki verið gert í þessu efni; Vigdís hefði farið langt út fyrir verksvið sitt og sýnt af sér fádæma hroka og í reynd valdníðslu í þessum efnum - og hún gæti ekki kvartað undan viðbrögðum Páls forstjóra eða annarra í samfélaginu; hún hefði sýnt á undanliðnum misserum að hún væri algera fullfær um það sjálf að koma sér í vandræði af þessu tagi - og þar væri ekki við aðra að sakast.

Steingerður minnti í þessum efnum á orð Henry Kissinger, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna sem var spurður af hverju hann hefði reynst jafn góður samningamaður og hann var almennt sagður vera; ég forðast að tjá mig um það sem ég hef ekki vit á, ku hann hafa svarað að bragði.

Ingimar benti á að þetta framferði Vigdísar væri í reynd í boði ríkisstjórnarinnar allrar, þar með talin harkan og yfirgangurinn sem oft og tíðum einkenndi suma ráðherra hennar sem gætu ekki unað öðrum landsmönnum að hafa aðrar skoðanir. 

Í tilefni af orðræðu Vigdísar var því einnig velt upp hvort hún sem formaður fjárlaganefndar væri ekki einmitt að hugsa meira um greiðendur en eyðendur í sínu starfi og hvort hún væri ekki gagnrýnd jafn mikið og raun ber vitni sakir þess hversu hart hún hefur stígið á eyðslubremsuna, en auk þess varf rætt um hvort Vigdís væri glöggt dæmi þess að talað væri verr um stjórnmálakonur en stjórnmálakarla.

Í þættinum var og rætt um almennt um orðræðuna í samfélaginu sem hefur verið vægast sagt harkaleg í aðdraganda jóla - og þá bar loftslagsráðstefnuna í París á góma, svo og meint aumingjavæðing á heimilum landsmanna þegar kemur að smávegis óveðri og spruningunni um hvort senda eigi krakkana í skólann.

Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:30.