Pirringurinn í ríkisstjórninni, einangrun ákveðinna ráðherra, verðtryggingarvandi forsætisráðherra og fjöldi annarra mála verður til umræðu í Ritstjórnunum á Hringbraut í kvöld, ásamt umdeildu fangaviðtali á Stöð 2 sem skók heldur betur samfélagsmiðlana seint í síðustu viku.
Það eru þau Benedikt Jóhannesson, ritstjóri Vísbendingar og Fanney Birna Jónsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins sem setjast á rökstóla með Sigmundi Erni að þessu sinni, en í þættinum sem byrjar klukkan 21:00 í kvöld verður að auki rætt um flóttafólkið sem kom til Íslands í dag og hvernig viðtökur það megi búast við og tengt því verður komið inn á þá miklu hatursumræðu sem einkennt hefur suma kima samfélagsmiðlanna á Íslandi á undanliðnum misserum þar sem líkamsmeiðingar og líflátshótanir eru að verða svo að segja daglegt braut.
Ritstjórarnir sem greina þjóðfélagsumræðuna eru sumsé alltaf á sínum stað klukkan 21:00 á þriðjudagskvöldum á Hringbraut.