Sjónvarpsþátturinn Ritstjórarnir hefur göngu sína að nýju á Hringbraut í kvöld, en haustdagskrá sjónvarpsstöðvarinnar tekur á sig mynd þessa vikuna. Í þætti kvöldsins verður Bjarnamálið brotið til mergjar.
Það eru ritstjórarnir Steingerður Steinarsdóttir og Vikunni og Þórður Snær Júlíusson á Kjarnanum sem eru fyrstu gestir Ritstjóranna, en allur fyrri hluti þáttarins fer í umræðu þeirra við þáttastjórnandann Sigmund Erni um Bjarnamálið svokallaða, en sem kunnugt er varð uppvíst í vikunni að Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra skráði sig inn á framhjáhaldssíðuna Ashley Madison að eiginkonu sinni afvitandi, að því er hún sjálf hefur upplýst opinberlega.
Báðir ritstjórarnir sem eru gestir þáttarins í kvöld segja að þótt málið kunni að þykja neyðarlegt fyrir Bjarna muni það ekki hafa áhrif á starf hans sem fjármálaráðherra eða trufla hann í formennsku Sjálfstæðisflokksins.
Í þætti kvöldsins er einnig fjallað um varaformannsframboð Hönu Birnu Kristjánsdóttur, flóttamannamálið og um pólitískan sigurvegara sumarsins, Gunnar Braga Sveinsson utanríkisráðherra.
Ritstjórarnir eru á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:30 í kvöld.
Þætti og klippur úr \"Ritstjórunum\" er að finna hér: