Ritstjórarnir: hillary enn líklegust

Bandarísk stjórnmál voru í brennidepli í þættinum Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld en þar var staðan í forsetaslagnum vestra greind í þaula, svo og fjallað um eðli og einkenni bandarískra stjórnmála og undanliðnum árum. Niðurstaðan: Hillary þykir enn líklegust í Hvíta húsið. 

Það voru þau Bogi Ágústsson, fréttamaður á RÚV og Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands sem settust á rökstóla með Sigmundi Erni að þessu sinni, en Bogi og Silja þekkja gjörla til pólitíkurinnar í Vesturheimi frá sjónarhóli frétta- og fræðimanns. Þau reyndust bæði sammála um að mestar líkur væru nú á því að Hillary Clinton, forsetaframbjóðandi demókrata yrði næsti forseti Bandaríkjanna, en full ástæða væri þó að taka það fram að staðan í aðdraganda forsetakjörs hefði sjaldan eða aldrei verið jafn flókin og óráðin. Þar valdi miklu óvenjulega mikið fylgi Bernie Sanders á væng demókrata og Donalds Trump á væng repúblikana, en þar sé annars vegar að finna róttækan vinstrimanna á bandarískan mælikvarða - sem þó er ef til vill bara að kynna norræna módelið - og næstum öfgafullan og klárlega orðhvatan hægrimann sem sé að mörgu leyti óskrifað blað. Fylgi beggja megi rekja til óánægju stórs hluta bandarískra kjósenda með kjör sín eftir efnahagshrunið vestra sem almenningur glími ennþá við, rétt eins og á Íslandi og á meginlandi Evrópu. Fylgið leiti því út fyrir hefðbundinn faveg sinn, rétt eins og þekkist á Íslandi nú um stundir; fólk sé ef til vill að refsa ríkjandi kerfi - og fyrir vikið verði ný tegund stjórnmálamanna á borð við Sanders og Trump - þótt engin ungmenni séu í aldri - fyrir valinu.

En ... ef staðan væri nú metin af veðbönkum hefði Hillary klárlega vinninginn - og um það voru Bogi og Silja Bára sammála. 

Þáttinn má sjá hér á vef Hringbrautar, svo sem eins og alla aðra þætti sjónvarpsstöðvarinnar.