Samkvæmisleikurinn um Bessastaði var mjög til umræðu í fjörlegum Ritstjóraþætti á Hringbraut í gærkvöld, en æ fleiri máta sig nú við embætti forseta Íslands eftir því sem líður nær kosningaárinu sjálfu.
Það voru þeir Andri Ólafsson, ritstjóri Íslands í dag og Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri Nútímans sem settust á rökstóla með Sigmundi Erni að þessu sinni, en báðir voru þeir í meira lagi sannfærðir um að Ólafur Ragnar Grímsson væri staðráðinn í að bjóða sig fram aftur. Andri kvaðst hafa orðið endanlega viss í þeirri sökinni þegar orðan var tekin af athafnamannimnum Sigurði Einarssyni, en Atli Fannar benti á að sjaldan eða aldrei hefði Ólafar Ragnar talað með jafn landsföðurlegri tón og nú um stundir; hér talaði maður sem væri tilbúinn að passa þjóð sína áfram gegn öllum hættum útlandsins.
Í þættinum, sem sjá má hér á vef stöðvarinnar, var einnig rætt um sviðsetningu fjárlagaumræðunnar, ákafa Sigmundar Davíðs í ræðustól og endurtekningu ársins 2007 sem Andri Fannar kvaðst aldeilis augljóst að væri að renna upp að nýju með Kobe-kjöti á hvers manns borði fyrir 20 þúsund kall kílóið, en fréttirnar sem hann hefði skrifað í aðdraganda hrunsins væri nú farnar að endurskrifa sig með sama ákafa og þær upprunalegu.
Síðasti Ritstjóraþáttur Hringbrautar á þessu ári verður þriðjudagskvöldið 29. desember og verður hann klukkustundarlangur uppgjörsþáttur þar sem margreyndir fjölmiðlamenn segja kost og löst á árinu sem er að líða og frammistöðu helstu frammaámanna í samfélaginu.