Fjögur mál bar helst á góma í Ritstjóraþætti gærkvöldsins á Hringbraut sem nú er hægt að sjá hér á vef stöðvarinnar, en það eru líkindin á því að Oddný G. Harðardóttir geti reist við Samfylkinguna, mistök Davíðs Oddssonar í forsetaslagnum, hvort þjóðin trúi sakleysi Sigmundar Davíðs og þrælahald á Íslandi.
Það voru stöllurnar Fanney Birna Jónsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins og Steingerður Steinarsdóttir, ritstjóri Vikunnar sem settust á rökstóla með Sigmundi Erni að þessu sinni, en í byrjun þáttarins hvarflaði tal þeirra að klemmdri Samfylkingu á milli rísandi hreyfingar vinstri grænna og hægri kratanna sem eru að blása vindi í segl Viðreisnar, en stór spurning er að þeirra mati hvort nýr formaður eigi möguleika á að rétta við fylgi kratanna, einkum ef hún teygir flokkinn til vinstri. Þá var vöngum velt yfir því af hverju mesti sigurvegari kosninga hér á landi til áratuga fer jafn vitlaust inn í forsetaslaginn og raun ber vitni en þar gæti verið í uppsiglingu stærsti ósigur sigursælasta stjórnmálamanns þjóðarinnar á síðustu áratugum, sem hugsanlega mun neyða hann til að fara aftur í landsmálin, eða hvað, er von að stöku maður spyrji. Og svo var það Sigmundur Davíð sem vissulega flutti ræðu helgarinnar til heimabrúks, en mun Framsókn tapa eða græða á frekari formennsku hans í flokknum; svar stallsystranna í þættinunum var þar klárlega á einn veg, hann sé rúinn trausti. Loks var fjallað um hvert mansalsmálið af öðru sem vitnar um brotna siðferðiskennd í íslenskum atvinnurekstri, en bæði Fanney Birna og Steingerður reyndust hafa ákveðna skoðun á því máli; græðgin væri góðmennskunni yfirsterkari.
Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld 21:30 í kvöld og sem fyrr segir sjáanlegir á vefnum.