Ritstjórar: íhaldið gengið í framsókn?

Nýr búvörusamningur, mansalsmál, staða Samfylkingarinnar og líkleg forsetaefni voru til umræðu í Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld en þar var meðal annars spurt hvort Sjálfstæðisflokkurinn væri genginn í Framsóknarflokkinn.

Þáttinn, sem var harla fjörlegur, má sjá hér á vef stöðvarinnar, en þar settust ritstjórarnir Benedikt Jóhannesson, útgefandi Frjálsrar verslunar og Steingerður Steinarsdóttir, ritstjóri Vikunnar á rökstólana með Sigmundi Erni og er meðal annars staldrað við þá lymskulegu aðferð landbúnaðarráðherra að kynna nýjan búvörusamning upp á ríflega 130 milljarða til næstu tíu ára í eftirmiðdaginn á föstudegi, án þess ap stjórnarandstaðan kæmi við vörnum, en spurt er einnig af hverju fjármálaráðherra mætti ekki á þann fund; stóð þessi feiti biti ef til vill í honum - og á hann kannski í jafn miklum erfiðleikum að kyngja honum og ýmsir þingmenn Sjálfstæðisflokksins í kjölfar þessa einhliða og vægast sagt umdeilda samnings, en þeir tjá sig nú hver af öðrum um efasemdir sínar um samninginn.

Og hvað á Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra við með þeim orðum sínum að þetta mál sé frá, afgreitt, búið ... þarf þá enga aðkomu Alþingis að þessari einu stærstu fjárskuldbiningu ríkisins á kjörtímabilinu sem bindur hendur næstu og ef til vill þarnæstu ríkisstjórnar, án þess að fulltrúar neytenda eða verslunar - og raunar alls almennings hafi nokkra aðkomu að málinu. Benedikt orðaði það einmitt svo í þættinum að svona ráðslag væri að fara með íslensk stjórnmál; fólk liði ekki lengur svona pukur og baktjaldamakk - og það væri í reynd með ólíkindum að stjórnmálamenn hegðuðu sér enn með þessum hætti miðað við það sem á undan hefur gerst.

Ristjórarnir voru sammála um að nýr búrvörusamningur væri Sjálfstæðisflokknum erfiðari en Framsóknarflokknum og afhjúpaði í reynd íhaldsemi þessa minnkandi flokks sem hefði reynt á síðasta landsfundi að baða sig í ljósi frjálslyndis, en þegar kipptist til í kaðlinum kæmu hnútar hans í ljós eins og löngum áður.

Og þá velta ritstjórarnir fyrir sér forsetaslagnum, ef slag skyldi kalla, en Benedikt spyr í þættinum hvort Ólafur Ragnar Grímsson muni ekki örugglega greiða götu vinar síns, Össurar Skarphéðinssonar út á Álftanes.

Ritstjórarnir eru endurteknir í dag, aftur um helgina - og sem fyrr segir sjáanlegir inni á vef stöðvarinnar.