Þær láta sko móðann mása, valkyrjurnar og fjölmiðlareynsluboltarnir Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri á Sögu og Steingerður Steinarsdóttir, ritstjóri Vikunnar, hvorugar hrifnar af útspili Íslandsbanka, sem ekkert hefur gert fyrir þeirra miðla, þótt stýrt sé af konum.
Og talið berst að linara Samkeppniseftirliti sem Arnþrúður segir að eigi sér andlag; auðveldara verði að sameina ríkisbankann Íslandsbanka og Arion banka og sjúga til sín bestu skuldarana úr Landsbanka með veikara eftirliti; til þess sé leikurinn akkúrat gerður.
Og eins er rætt um tveggja ára afmæli ríkisstjórnar. Steingerður segir fólkinu á þeim bænum barasta líða vel, stjórnin sé afleiðing óreiðu í pólitíkinni sem fólk hafi verið orðið þreytt á, en Arnþrúður er ekki alveg sammála; í stjórninni séu endalausir sólóráherrar sem fari sínu fram, óháð verkum annarra.
Allt byrjar þetta klukkan 21:00 í kvöld.