Ritstjórarnir, hvalveiðar og helgi björns í 21 í kvöld

Í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld kennir ýmissa grasa sem endranær.

Bjarni Harðarson, bóksali á Selfossi, og Kristjón Kormákur Guðjónsson, ritstjóri DV, mæta til Sigmundar Ernis í Ritstjórana. Þar ræða þeir m.a. frumvarp um innflutning á fersku kjöti og öðrum ferskvörum auk könnunar Gallup sem sýnir minnkandi traust almennings í garð ríkisstofnana. Alþingi sé t.d. orðið óvinsælla en bankakerfið.

\"\"

Ole Anton Bieltvedt, stofnandi Jarðarvina, er gestur Lindu Blöndal í þættinum. Þar ræðir hann hvalveiðar, en nýverið veitti Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra nýja fimm ára heimild til  veiða á langreyði og hrefnu. Ole Anton er með öllu mótfallinn hvalveiðum og hefur gagnrýnt harðlega það sem honum þykir sérstök greiðastarfsemi ríkisins við Kristján Loftsson og fyrirtæki hans Hval hf.

\"\"

Ole Anton hefur lagt mikið í sölurnar til að vekja athygli á málstað sínum og Jarðarvina, m.a. með heilsíðuauglýsingum í Morgunblaðinu, aðsendum greinum og blaðaviðtölum, en er það að bera einhvern árangur?

Að lokum fer Sigmundur Ernir í heimsókn á tónleikastaðinn Græna hattinn á Akureyri, þar sem hann tekur stórsöngvarann ástsæla Helga Björns tali. Helgi hélt tvenna tónleika á Græna hattinum um liðna helgi og vakti mikla lukku eins og hans er von og vísa.

\"\"

Við sama tækifæri ræddi Sigmundur Ernir við Hauk Tryggvason, framkvæmdastjóra Græna hattsins, og spurði hann út í einn vinsælasta tónleikastað landsins.

21 hefst klukkan 21:00 á Hringbraut í kvöld.