Ritstjórarnir hrósa gunnari braga

Ritstjórarnir í samnefndum þætti á Hringbraut í gærkvöld áttu það sammerkt að hrósa Gunnari Braga Sveinssyni, utanríkisráðherra fyrir framgöngu hans í þvingunaraðgerðunum gagnvart Rússum, en þar hefur hann staðið uppi í hárinu á útgerðarmönnum svo eftir hefur verið tekið.

Það voru þau Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, fréttastjóri Fréttatímans og Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans sem settust á rökstóla með Sigmundi Erni í þætti kvöldsins og umræðuefnið var meðal annars barátta Gunnars Braga við útgerðina, krónuummæli forsætisráðherra og ástríða hans í umhverfismálum, en einnig barst talið að uppákomunni í fangelsinu á Kvíabryggju, hvar kunnir fangar hafa kvartað sáran undan kvikmyndatökufólki sem ku vera að spyrja mann og annan um fræga fólkið innan rimla.

Þá var og fjallað um væntanleg örlög húsnæðisfrumvarpa Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra sem eru í blóra við meginstefnu Sjálfstæðisflokksins og verða væntanlega einn helsti ásteytingarsteinn í samstarfi ríkisstjórnarflokkanna á nýju ári, en Eygló, sem þykir vera að einangrast í eigin flokki, líkt og Gunnar Bragi, er jafnvel geta talin stefnt ríkisstjórnarsamstarfinu í hættu haldi hún vilja sínum í húsnæðismálum til streitu.

Þá var við hæfi í lok þáttarins að minnast Davids Bowie sem lést um nýliðna helgi, 69 ára og tveimur dögum betur.

Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00, en þáttinn má einnig sjá hér á vef stöðvarinnar.