Ritstjórarnir á Hringbraut fóru yfir hið pólitíska svið á þriðjudagskvöld og voru á einu máli að stjórnarflokkarnir væru nú byrjaðir að fjarlægjast hvor annan til að minna í sérstöðu sína tæpu hálfu öðru ári fyrir kosningar.
Það voru þeir Atli Þór Fanndal og Sigurjón M. Egilsson sem settust á rökstóla með Sigmundi Erni að þessu sinni og taka fyrir stöðu stjórnarinnar í fyrri hluta þáttarins, rýndu í það sem hún hefur gert vel og veltu fyrir sér af hverju hún uppsker ekki í samræmi við hagtölur og allt sitt erfiði, ekki ósvipað og var hlutskipti vinstristjórnarinnar sem sat að völdum þar á undan.
Ritstjórarnir voru sammála um að víkin milli vina myndi breikka á næstu vikum og mánuðum og áttu þar við stjórnarflokkanna sem hefðu að mörguy leyti verið samstilltir frá því þeir hófu samstarf á vormánuðum 2013, en nú væri augljóslega farið að gæta hefðbundins pirrings á milli þeirra í upphafi síðasta heila valdaársins sem væri vanalega tími yfirlýsinga og sundrungartals. Forkólfar flokkarnir og undirsátar væru farnir að þenja sín brjóst og tala gegn tillögur hver annars, svo sem í húsnæðismálum, verðtryggingu og einkavæðingu bankanna og raunar hvað allt fjármálakerfið varðaði.
Þá væri áberandi að ráðherrar kæmu varla málum sínum lengur að; þau væri annað tveggja innlyksa í ríkisstjórn eða fengust ekki lögð fram á Alþingi sakir þess hversu umdeild þau væru millum stjórnarflokkanna.
Í seinni hluta Ristjóraþáttarins í gær fjölluðu Atli Þór, Sigmundur og Sigurjón um líðan hvers og eins þeirra stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi, skoðuðu veikleika þeirra og möguleika á að komast vel frá næstu þingkosningum sem nálgast óðfluga þegar flokkarnir óttast stórum að aðrir steli senunni eftir í aðdraganda næsta uppgjörs í íslenskri pólitík.
Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00 og endursýndir um helgar, en þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar, en einnig í styttri klippum inni á hringbraut.is.