Ritstjórarnir greindu rúv-umræðuna

Málefni Ríkisútvarpsins voru í brennidepli í sjónvarpsþættinum Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld, enda er þessi stærsti fjölmiðill landsins enn einu sinni tilefni hávaðarifrildis í samfélaginu.

Það voru þeir Jón Agnar Ólason, ritstjóri sérblaða Morgunblaðsins og Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans sem settust að þessu sinni á rökstóla með ritstjóranum Sigmundi Erni Rúnarssyni og veltu fyrir sér þörfinni á ríkisrekinni fjölmiðlaþjónustu, sem þeir voru raunar allir sammála um að ætti að vera til staðar, en þó í breyttri mynd með fyrirséða tekjustofna sem myndu bæta RÚV upp brottförina af auglýsingamarkaði sem ritstjórarnir þrír töldu eðlilega og raunar nauðsynlega svo fjölmiðill í almannaeigu þyrfti ekki að eltast við duttlunga markaðarins og selja umfjöllun sína hæstbjóðanda.

Umræða þremenninganna snerist að mestu um skýrslu Eyþórs-nefndarinnar um ríkismiðilinn sem þeir töldu meira og minna að hefði verið ónauðsynleg í ljósi þess að fyrri skýrslur - og þær varla ársgamlar - hefðu sýnt ósjálfbærni í rekstri RÚV allt frá því það var gert að opinberu hlutafélagi árið 2007, en ef réttlæta mætti skýrsluna að einhverju leyti væri ef til vill hægt að nefna þann hluta hennar sem sneri að breytingum á neyslumynstri á fjölmiðlamarkaði sem RÚV, rétt eins og aðrir miðlar, þyrftii að taka fullt mark á, svo sem með því að færa þjónustu sína meira inn á netið sem RÚV hefðii ekki gert sem skyldi, af því það hentaði ekki auglýsingastefnu miðilsins.

Ritstjórarnir ræddu líka um það hvort líta beri á skýrsluna sem pólitísk plagg, en mjög hefur verið deilt á það hvernig nefndin sem vann við hana var skipuð og við hversu fáa var talað við gerð hennar, en jafnvel hefur verið látið að því liggja í háværri umræðu um skýrsluna að þar sé komið efni í spuna sem hanna muni þá atburðarás sem henti einkamiðlum mest og best á kostnað ríkismiðilsins. Sitt sýndist hverjum um það atriði í þættinum.

Ritstjórana er hægt að nálgast hér á hringbraut.is.