Ritstjórarnir: pólitíkin er í kreppu

Pólitísk kreppa gömlu flokkanna var greind í þaula í þættinum Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld, en þar var að auki rætt um nýgerðan búvörusamning, arðgreiðslur útgerðarinnar og ferðamannaþensluna.

Þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar, en þar eru það ritstjórarnir Gunnars Smári Egilsson hjá Fréttatímanum og Þórður Snær Júlíusson hjá Kjarnanum sem setjast á rökstólana með Sigmundi Erni. Drýgstur tími þáttarins fer í að greina vanda hefðbundinna stjórnmálaflokka sem virðast í æ minna mæli ná eyrum almennings - og jafnvel þeir sem gera það virðast nú engjast um sakir innanflokksmeina og þurfa á vinnustaðasálfræðingi að halda til að berja í brestina innan sinna raða. Þá er spurt hvort nýjasta aflið í íslenskri pólitík, Þjóðfylkingin fái einhvern hljómgrunn hér á landi og svar ritstjóranna við þeirri spurningu er fremur jákvætt; hér á landi sé að finna all stóran hóp fólks sem vilji girða fyrir innflutning vinnuafls og draga úr alþjóðlegu samstarfi - og þar sé því jafnvel á vísan að róa.

Úrræðaleysi íslenskra stjórnmálaflokka þegar kemur að brýnum úrlausnarefnum er mjög til tals í þættinum en þar benda þeir Gunnar Smári og Þórður Snær á fjöldann allan af meginverkefnum samfélagsins sem stjórnmálaflokkarnir hafa svo að segja engin svör við; þeir eru jafnvel heimaskítsmál þegar kemur að brýnustu úrlausnarefni þess að mati Gunnars Smára.

Búvörusamningurinn þykir þeim vera dæmi um þá gamaldags pólitík sem enn þrífst á Íslandi þar sem auðvitað neytendur en jafnvel líka bændur eru hlunnfarnir á meðan lítill klíka karla á sjötugsaldri getur makað krók sinn á óhollustu sem eigi að heita iðnaðarvara fremur en ferskleiki beint af býli. Þá er og spurt um aðra hefðbundna atvinnugrein sem ritstjórunum sýnist hafa leikið á almenning; engu skipti þótt ákvæði um þjóðareigjn á sjávarauðlindinni komi inn í nýja stjórnarskrá; enn verði jafn illa skipt og áður og arðurinn renni að mestu áfram til örfárra útgerðarmanna sem í raun og sann hagnist ævintýralega á þessari svokölluðu sameiginlegu auðlind á þeim tímum þegar gengishagnaðurinn rennur allur meira og minna í þeirra sama vasa, en hefði betur farið í leiðréttingar til almennings.

Loks er komið inn á ferðamannaþensluna, þá meginskekkju Isavia sem reiknaði fyrir þremur mánuðum með 25% fjölgun erlends ferðafólks hér á landi í ár, en hefur nú uppfært hana í 37% sem gæti hæglega aukið hagvöxt hér um heilt prósent, úr þeim 4,2% sem Hagstofan spáði nýlega í liðlega 5% hagvöxt - og hvað mun þá gerast? Jú, kosningaveturinn byrjar snemma í haust með gylliboðum í síðustu fjárlögum fyrir kosningar - og þensluveturinn að ári gæti því orðið gömlu ævintýri líkastur.

Ritstjórarnir eru endursýndir í dag, en hægt er sem fyrr segir að nálgast þá einnig á vef stöðvarinnar.