Hryðjuverkaárásin á París síðasta föstudagskvöld var aðalumræðuefnið í Ritstjórunum í gærkvöld en þar var lögð áhersla á að greina framvindu mála eftir þessa mannskæðustu árás í Evrópu um rösklega áratugarskeið.
Þáttinn má sjá hér á hringbraut.is, en þar voru það þau Bogi Ágústsson, einn sérfróðasti fréttamaður landsmanna um erlend málefni og Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins sem settust á rókstóla með Sigmundi Erni og veltu fyrir sér hvaða áhrif atburðirnir í Frakklandi á þessu ári muni hafa á flóttamannastrauminn til Evrópu og raunar Ameríku einnegin, en fjöldi ríkisstjóra vestanhafs og stjórnmálamanna austan hafs hafa goldið varhug við enn frekari innflutningi flóttamanna frá stríðshrjáðum botni Miðjarðarhafs í ljósi aukinnar hörku á milli hins múslimska og kristna heims.
Því var að auki velt upp hvort Frakklandsforseti hefði brugðist of harkalega við árásinni, en hann hefur sagst ætla að útrýma öfgahópi múslima í Sýrlandi og Írak, en Bogi Ágústsson nefndi það í þættinum að mestu mistökin sem Vesturlönd gætu gert um þessar mundir væru að ráðast inn í þessi stríðshrjáðu lönd með offorsi og yfirgangi, viturlegast væri að styðja þau innanfrá fremur en að ota amerískum og evrópskum herjum að heimafólki sem væri jú öfgahópum múslima helst að skapi og þjappaði þeim mest saman; menn hlytu að hafa lært eitthvað af mistökunum í Írak á sínum tíma, en inngrip Vesturlanda í því landi væru á meðal verstu ófara í hernaðarsögu vesturveldanna á síðustu áratugum - og hefði í reynd kveikt í púðurtunnunni sem nú logi svo glatt.
Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagsklukkan 21:30 á Hringbraut.