Ritstjórarnir greina forsetaslaginn

Forsetaslagurinn verður greindur í þaula í þættinum Ritstjórunum á Hringbraut í kvöld, en þar verða Davíð Oddsson og Guðni TH. Jóhannesson mátaðir í forsetastólinn og síðustu tilþrif Ólafs Ragnars vegin og metin.

Það er engin tæpitunga töluð í þætti kvöldsins þar sem Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri Nútímans og Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans setjast á rökstóla með Sigmundi Erni og fara yfir súrrealíska framvindu forsetabaráttunnar síðustu daga þar sem við sögu koma tveir plássfrekustu pólitíkusar síðustu ára inn á milli mannsins sem margir líkja við Kristján Eldjárn og fór með sigur á stjórnmálaelítunni á sínum tíma, raunar sá eini á forsetastóli sem náð hefur meirihlutafylgi í fyrsta kjöri - og nú er spurningin hvort sagan muni endurtaka sig, eða hvort sjarmi og sagnalist Davíðs Odssonar mun heilla þjóðina enn á ný, enda augljóst, að því er gestir þáttarins í kvöld segja, að hann muni snúa þeirri hliðinni að kjósendur, altént fyrstu vikurnar í baráttunni, hvað sem síðar verður. En hvernig forseti yrði hann. Og hvernig forseti yrði Guðni. Og hefur Ólafur Ragnar eyðilagt arfleifð sína með vandræðalegum lokaleik?

Ritstjórarnir hefja upp raust sína klukkan 21:15 í kvöld.