Ritstjórar: forseti gæti þvælst fyrir

Sögulegar alþingiskosningar um síðustu helgi og eftirmál þeirra voru gerð upp af fréttaskýrendunum Andrési Magnússyni af Viðskiptablaðinu og Þórunni Elísabetu Bogadóttur af Kjarnanum í málglöðum Ritstjóraþætti á Hringbraut í gærkvöld.

Þáttinn má nú sjá hér á vef stöðvarinnar, en meðal þess sem þremenningarnar ræddu er hver megi teljast helsti sigurvegari kosninganna, hvernig pólitíska landslagið hefur breyst eftir þær og hvort þær auðveldi eða erfiði ákveðnum flokkum aðkomu að næstu ríkisstjórn.

Þá var vöngum velt yfir útspili Pírata fyrir kosningar sem margir ætla að hafi fært sjálfstæðismönnum veglegt vopn í lokabaráttunni - og eins útspili Píratanna eftir kosningar um að verja nýja mið- og vinstristjórn falli. Hvorutveggja fannst Andrési Magnússyni vera fráleit pólitík, en Þórunn Elísabet tók ekki svo djúpt í árinni, sagði leið Pírata í þessu efnui altént vera áhugaverða.

Eins var staða nýs forseta í stjórnarmyndunarviðræðum rædd í þaula, en þar setja stöku menn spurningamerki við það hvort hann ætli sér strax of stórt hlutverk og fari fram úr sér í afskiptasemi. Andrés var þeirrar skoðunar að forsetinn gæti allt eins þvælst fyrir stjórnarmyndunarviðræðum.

Loks var fjallað um stöðu Framsóknarflokksins og spáð í það hvort hann sé lengur stjórntækur vegna innanmeina og að endingu verður augum beint að þrotabúi Samfylkingarinnar sem jafnvel kann hugsanlega að vera dánarbú hennar í ofanálag.

Ritstjórarnir verða endursýndir í dag, en eru sem fyrr segir sjáanlegir á vef stöðvarinnar.