Ritstjórarnir gera upp fréttaárið

Fréttaárið 2016 var gert upp á tæpitungulausri íslensku í fréttaskýringaþættinum Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld, en þar settust þeir Gunnar Smári Egilsson, útgefandi Fréttatímans og Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans á rökstóla með Sigmundi Erni.

Þáttinn má nú sjá hér á vef stöðvarinnar, en þar ber afsögn forsætisráðherra og eftirmál hennar einna hæst í fréttauppgjöri ársins, en þess utan eru tvennar kosningar gerðar upp og rýnt þar í framboðsraunir Davíðs Oddssonar og glæsilega innkomu Guðna Th. Jóhannessonar á Bessastaði, svo og merkingu þingkosninganna sem fært hafa landsmönnum fordæmalausar kringumstæður í pólitíkinni og stjórn landsmála.

Þá eru fjármálahöftin og losun þeirra tekin fyrir, að ekki sé talað um þá dásamlegu veislu sem EM-spretturinn var í sumar þegar íslenska þjóðin breyttist í krúttlega fjölskyldu og loks er spurt hvort svo sé komið að kynslóðin sem komin er á miðjan aldur sé í þann mund að skila yngri kynslóðum verra búi en þær eldri tóku við fyrir all mörgum árum.

Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld 21:30.