Ritstjórarnir gera upp árið

Ritstjórar, blaðamenn, þjóðmálarýnendur og stjórnmálamenn settust á rökstóla í þættinum Ritstjórarnir á Hringbraut í gærkvöld, en þessi áramótaútgáfa af þættinum er klukkutímalöng - og það er um nóg að tala.

Ritstjórarnir Benedikt Jóhannesson og Steingerður Steinarsdóttir mættu fyrst allra í þáttinn og greindu fréttaárið sem er að líða, en þar á eftir settust Reynir Traustason, blaðamaður og Þórunn Elísabet Bogadóttir, aðstoðarritstjóri Kjarnans á rökstóla með Sigmundi Erni og fjölluðu um þau málefni sem þeim finnst hafa einkennt fimmtánda ár nýrrar aldar.

Í millikafla þáttarins mætti Gunnars Smári Egilsson sem brátt tekur við útgáfu Fréttatímans og ræðir um íslenskt og evrópskt samfélag í ljósi tíðinda ársins þar sem flóttamenn, fjölmenningarsamfélag og hryðjuverkaógn hafa sett sterkan svip á umræðuna jafnt sem fréttaflutning.

Í lok þáttarins var svo pólitíkin á árinu gerð upp með fulltingi þingflokksformannanna Birgittu Jónsdóttur, Helga Hjörvar og Ragnheiðar Ríkharðsdóttur en óhætt er að segja að stjórnmálin hér á landi séu að ganga í gegnum miklar breytingar á allra síðustu misserum þar sem hefðbundið stjórnmálastarf hefur átt undir högg að sækja á meðan lýðræðisvirknin hefur orðið meiri og almennari úti á meðal alls almennings.

Ritstjórarnir verða endursýndir á Hringbraut og einnig verður hægt að nálgast þáttinn á netinu á hringbraut.is