Sýrlandsstríðið og afleiðingar þess voru í brennidepli í Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld, en þátturinn var með óvenjulegu sniði að þessu sinni helgaður einni og sömu fréttinni - og þeirri stærstu erlendu nú um stundir.
Það voru Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi og Þórir Guðmundsson, yfirmaður Rauða krossins í Reykjavík sem settust á rökstóla með Sigmundi Erni í þætti kvöldsins og eins og sjá má í þættinum hér á vef stöðvarinnar er þar fjallað um stríðsvandann sjálfan og líkur á friði, flóttamannastrauminn og hvernig konur og börn eru að verða í æ ríkari mæli fyrir barðinu á ófrendarástandinu heima fyrir og loks verður talinu beint að hiksta Evrópu, en þröskuldur álfunnar gagnvart sýrlensku flóttafólki virðist fara hækkandi.
Vandinn er engu að síður gríðarlegur. Af 22 milljónum Sýrlendinga er helmingur landsmanna á flótta, innan eða utan landamæranna - og konur og börn á helstu átakasvæðinu eru í reynd fangar aðstæðna sinna, fólkið er svelt jafnvel mánuðum saman og hefur tapað aleigu sinni, en er engu að síður tilbúið að leggja á flótta yfir Eyjahafið á illa búnum bátskænum, gerðum út af svikahröppum, sem vitað er fyrirfram að komast ekki yfir nema sakir heppni. Af þeim konum sem reyna flóttann eru 12% barnshafandi, fjölmargar eru ekkjur eftir átökin heima fyrir og reyna að koma börnum sínum til betra lífs, en handan Eyjahafsins taka við skipulagðir glæpahópar sem hafa mansal og misnotkun á samviskunni.
Inga Dóra og Þórir gjörþekka málaflokkinn - og fyrir vikið er þátturinn afar upplýsandi, en hann verður endursýndur í dag og svo aftur um helgina.