Ritstjórarnir setja sig í dómarastellinguna í samnefndum þætti á Hringbraut í kvöld og ræða frammistöðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fræg ummæli hans um veruleikafirringu þjóðarinnar og almennt um leiðtogahæfni hans.
Að þessu sinni mæta í spjallið ritstjórarnir Atli Fannar Bjarkason af Nútímanum, Eggert Skúlason af DV og Steingerður Steinarsdóttir af Vikunni - og ekki einasta verður rýnt í frammistöðu formanns Framsóknarflokksins í þættinum heldur og rætt um ástand Alþingis sem logar í átökum og óvinafagnaði, en spurt er í þættinum hvort komið sé nóg af þeirri mynd þingstarfa sem löggjafarsamkoma þjóðarinnar kýs að snúa að þjóð sinni dag eftir dag, viku eftir viku, ár eftir ár. Þar virðist reglan vera sú að fyrst síðasta stjórnarandstaða hafi komist upp með eitthvað megi sú núverandi haga sér eins og helst bíta höfuðið af skömminni í frammíköllum, uppnefnum og málþófi.
Eins ber verkföllsátökin á góma, stöðu samkynhneigðra í heiminum að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslunni á Írlandi og svo verður vitaskuld tekið skrens á Euróvisjón, nema hvað ...
Ritstjórarnir eru frumsýndir klukkan 21.30 í kvöld.