Hvað gerist á Bretlandseyjum ef heimsveldið vestan Ermarsunds segir skilið við Evrópusambandið? Þetta var meginspurningin í þættinum Ritstjórunum á Hringbraut í gærkvöld - og henni var svarað af yfirvegun og hlutlægni.
Það var einn reyndasti fréttamaður landsins, Bogi Ágústsson sem settist að þessu sinni á rökstóla með Sigmundi Erni að þessu sinni, en með þeim félögum rýndi stjórnmálafræðingurinn Eiríkur Bergmann Einarsson í þær sviðsmyndir sem blasa við, fari Bretar úr bandalaginu eða verði áfram hluti þess, en sá síðastnefndi hefur helgað sig rannsóknum á ESB á síðustu árum. Hægt er að sjá klippur úr þættinum á vef Hringbrautar og þáttinn hér í heild sinni.
Þeir Bogi og Eiríkur eru sammála í þættinum um að það muni hafa varanleg áhrif á samfélagið á Bretlandseyjum fari svo að landsmenn þar segi skilið við ESB, því þá muni ekki einasta Skotar hugsa sér til hreyfings heldur og Írar, þar á meðal Norður-Írar en landamærin þar á milli myndu lokast að nýju við útgöngu Breta og það muni hvorki Írar í suðri né norðri geta hugsað sér; afleiðingarnar gætu hæglega kostað átök á nýju á eyjunni grænu þar sem friður hefur ríkt á síðustu árum eftir áratugalangar erjur og skærur millum sambandssinna og lýðræðissinna.
Í seinni hluta Ritstjóraþáttar kvöldsins var svo rætt um enn aðra sviðsmynd í heimi hér, Donald Trump á forsetastóli vestanhafs.
Ritstjórarnir eru fru´msýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:15.