Það verða ritstjórar Kjarnans, Herðubreiðar og Vikunnar sem mæta að þessu sinni í vikulegt ritstjóraspjall á Hringbraut og leggja mat sitt á líðan samfélagsins og frammistöðu þeirra sem eru mest áberandi í þjóðfélagsumræðunni.
Þau Karl Th. Birgisson, Steingerður Steinarsdóttir og Þórður Snær Júlíussonar munu ræða pólitíska arfleifð Halldórs Ásgrímssonar í þættinumn í kvöld, en hann féll frá í gær, auk þess sem ráðherraslagur Bjarna Benediktssonar og Eyglóar Harðardóttur verður rýndur til botns. Þá verður fjallað ´´itarlega um höftin og frumvörpin um losun þeirra, svo og launamun kynjanna sem er viðvarandi að ógleymdu stóra rútubílamálinu sem skekur miðborgarlífið þessa dagana með miklum harmkvælum, jafnvel svo að lögreglan hefur þurft að biðjast opinberlega afsökunar á framferði sínu í þrengstu götum borgarinnar.
Þátturinn sem er í umsjá Sigmundar Ernis Rúnarssonar er frumsýndur klukkan 21.30 í kvöld.