Fjarvera forsetans, lánaleiðrétting til efnafólks, ferðagleði ráðherra og furðulegt háttalag Alþingis á miðju sumri er meðal umfjöllunarefni í fjörlegum þætti af Ritstjórnunum sem er á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:30 í kvöld.
Ritstjórar vefmiðlanna verða áberandi í þættinum í kvöld, þau Magnús Geir Eyjólfsson ritstjóri Eyjunnar, Jón Trausti Reynisson ritstjóri Stundarinnar og Þórunn Elísabet Bogadóttir aðstoðarritstjóri Kjarnans.
Og sem fyrr segir er meðal umræðuefna umtöluð fjarvera forseta íslands á kosningarafmæli Vigdísar Finnbogadóttur á Arnarhóli á sunnudagdkvöld, en á meðan snæddi hann kvöldverð með forráðamönnum Goldman Sachs og fleiri stórbokkum á Englandi. Ritstjórarnir voru sammála um það að Ólafur Ragnar Grímsson væri snillingur í að koma sér í félagsskap umdeildra athafnamanna og þjóðarleiðtoga - og það hefði ekki í rauninni verið aðalfréttinn á sunnudag að hann hefði ekki samgleðst Vigdísi hér heima heldur í hvaða hópi hann hefði haldið sig á sama tíma.
Þá kemur fram í þættinum almenn gleði ritstjóranna yfir því að ráðherrar ferðist mikið til útlanda því það muni auka með þeim víðsýni og minnka þjóðernisrembing sem nokkuð hafi borið á í mæli þeirra.
Meiningarfullur þáttur af Ritstjórunum er sem fyrr segir frumsýndur klukkan 21:30 á Hringbraut í kvöld.