Ritstjórar héraðsblaðanna mæta

Það verður litið út fyrir Elliðaárnar í Ritstjórunum á Hringbraut í kvöld en þá setjast Magnús Magnússon, ritstjóri Skessuhorns og Sigmundur Sigurgeeirsson, ritstjóri Sunnlenska fréttablaðsins við hringborðið hjá Sigmundi Erni.

Hlutskipti íslenskra bænda og örlög nýja búvörusamningsins verða til umfjöllunar í byrjun þáttarins, en svo víkur sögunni að ferðaþjónustunnu úti á landi sem blómstrar sem aldrei fyrr. Er ágangurinn orðinn full til mikill? Hafa stjórnvöld brugðist í uppbyggingunni? Ber að beita ítölu á vinsælustu stöðunum?

Þá verður og fjallað um ímynd landsbyggðarinnar í íslenskum fjölmiðlum og spurt hvort það sé ennþá svo að skrýtni karlinn í furðulega firðinum komist einn að þegar stóru miðlarnir skreppa út á land.

Ritstjórarnir eru á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:30 í kvöld.