Tyrknesk stjórnvöld hafa látið loka aðgengi Tyrkja að alfræðiritun Wikipedia. Wikipedia er nú lokuð á öllum tungumálum - en ekki bara tyrknesku.
Þeir útlendingar sem nú eru staddir í Tyrklandi eins og landsmenn allir komast nú ekki inn á Wikipedia nema með því að brúka hjáleiðir sem fara á svig við lokunina eða svokallaða Proxy-þjónstu.
Þessi lokun er framkvæmd með stjórnvaldstilskipun án þess að dómsúrskurður liggi fyrir um lögmæti hennar.