Rithöfundar fagna fjárlagafrumvarpi

Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu 2016 hækkar framlag í Bókasafnssjóð í 70 milljónir króna á næsta fjárlagaári. Rithöfundasambandið segir í pósti til félagsmanna að þetta séu gleðitíðindi „frá yfirvaldinu“.

Mikil umræða hefur orðið um niðurskurð í sjóðnum og bágan hag rithöfunda. Fyrir tveimur árum fór framlagið í sjóðinn niður í 23 milljónir króna. Í fyrra varð mikið þjark milli rithöfunda og ríkisstjórnarinnar og hækkaði þá framlagið í 45 milljónir króna. Hækkunin nú í 70 milljónir króna nemur tæpum 65% milli ára.

Rithöfundasambandið segir mikilvægt að Bókasafnsssjóður  komist í viðunandi lagaramma svo hann sé ekki háður geðþóttaákvörðunum stjórnvalda hverju sinni.

„Að auki skal að sjálfsögðu stefna að því að þrefalda hann svo höfundar fái sanngjarnar greiðslur fyrir afnot af verkum sínum. En við erum lögð af stað í langferð, og njótum, að því er virðist, skilnings stjórnvalda,“ segir í bréfi Kristínar Helgu, formanns Rithöfundasambandsins, starfsmanns og stjórnar til félagsmanna.