Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson, ritari Samfylkingarinnar, þjófkennir Ásmund Friðriksson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, á nýrriTwitter-færslu sinni. Hann segir að á þjóðþingum allra nágrannalanda \"segja þjófar af sér þegar kemst upp um þá.\"
Og ritarinn bætir við. \"Ásmundur mætti gera það núna.\" Óskar Steinn hefur áður ratað í fréttir vegna ummæla sinna á Twitter, en hann sagði Agli Einarssyni til dæmis að fokka sér, sem hann baðst svo afsökunar á.