Marsmánuður er helgaður karlmönnum og krabbameini undir árvekniátakinu Mottumars sem nú er haldinn í sjöunda sinn, en átakið hefur þegar skilað miklum árangri að sögn starfsfólks Krabbameinsfélagsins.
Tilgangurinn með Mottumars er að fá karla til að vera vakandi fyrir einkennum og þekkja helstu einkenni krabbameina - og er óhætt að segja að frá því að átakið hófst hafi orðið mikil vitundarvakning í samfélaginu fyrir krabbameini hjá körlum. Karlmenn eru nú opnari fyrir því að leita til heilbrigðisstarfsólk með ýmis heilsufarstengd vandamál. Í könnun sem Krabbameinsfélagið lét gera kemur fram að í dag hafa fleiri karlar yfir fimmtugt en konur látið leita að ristilkrabbameini hjá sér.
Ár hvert greinast um 750 karlar á Íslandi með krabbamein og nú eru á lífi um 5.800 karlar sem hafa greinst með krabbamein. Um þriðji hver karl fær krabbamein á lífsleiðinni og um tíunda hvert krabbamein skýrist af arfgengum þáttum. Lífshorfur hafa batnað mikið undanfarin ár hjá þeim sem greinast. Fyrir 40 árum síðan lifðu um 26% karla með krabbamein í fimm ár eða lengur en í dag geta um 66% karla með krabbamein vænst þess að lifa svo lengi.