Tónleikahaldarinn Björn Steinbekk skrifaði í dag hugleiðingu á Facebook um Guns N’ Roses tónleikana sem fjöldi fólks sótti í Laugardalnum í gær.
Hann telur hæpið að á svæðinu hafi verið fleiri en 15-16.000 borgandi gestir. Heyrst hefur að hagnaðarvon tónleikahaldara hafi verið bundin við að yfir 20 þúsund miðar yrðu seldir.
Talið er að kostnaður við tónleikana sé hátt á fjórða hundrað milljóna. Þar af tekur hljómsveitin um 250 milljónir króna, en tækni, markaðssetning, ferðalög og uppihald fyrir stóran hóp kostar líka mikið. Sé mat Björns á fjölda greiðandi tónleikagesta rétt, má áætla að tekjurnar hafi verið rétt um 300 milljónir. Það skilur eftir stórt tap fyrir tónleikahaldarann, Solstice productions sem er að stærstum hluta í eigu Jóns Ólafssonar athafnamanns.