Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis og þingmaður Samfylkingarinnar og Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Framsóknar sem situr í efnahags og viðskiptanefnd Alþingis voru á mjög ólíku máli um kosti þeirra leiða sem kynntar voru í gær um fasteignakaup með notkun séreignasparnaðar. Leiðirnar eru ætlaðar þeim sem eru að kaupa fyrstu fasteign. Sigríður Ingibjörg sagði þetta hænuskref í átt að afnámi verðtryggingarinnar og svo virtist sem Framsóknarflokkurinn hafi lúffað fyrir Sjálfstæðisflokknum í málinu. Einnig myndi þetta líklega hækka fasteignaverð, í það minnsta þyrfti að skoða betur afleiðingar þessara aðgerða.
„Sumt af þessu skil ég heldur bara ekki“, sagði Sigríður og það væri of margt óljóst til að átta sig á áhrifum aðgerðanna. Vandamálið væri aukinheldur aðallega íslenska krónan. Líneik neitaði því að Framsókn væri að svíkja kosningaloforð sem var um að afnema verðtrygginguna. Hún telur að risaskref sé tekið með aðgerðunum og það sé það sama og lofað hafði verið fyrir kosningarnar síðustu. Það falli líka vel að frumvörpum Eyglóar Harðardóttur, félagsmálaráðherra sem hefur einbeitt sér að félagslegu húsnæði.
Þrjár leiðir voru kynntar:
Sparnaðarleið. Þar má nýta uppsafnaðan séreignarlífeyrissparnað til innborgunar við kaup á fyrstu fasteign.
Höfuðstólsleið. Þá er hægt að nýta sparnaðinn til að niðurgreiða höfuðsstól lána mánaðarlega.
Blönduð leið. Sparnaðurinn er nýttur bæði til að greiða inn á höfuðstól og sem hluta af afborgun inn á óverðtryggt lán við kaup á fyrstu íbúð.
Úrræðið má nýta í tíu ár samfleytt og úttektin á sparnaðinum verður skattfrjáls.