Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Tulipop, er á meðal gesta hjá Jóni G. í kvöld. Þau ræða nýlegan risasamning Tulipop við Zodiak Kid um framleiðslu á 52 sjónvarpsþáttum þar sem byggt er á teiknimyndum Tulipop – og sýndir verða um allan heim. Þær Helga og Signý Kolbeinsdóttir hönnuður stofnuðu Tulipop fyrir átta árum og telst það varla sprotafyrirtæki lengur heldur vaxtarfyrirtæki. Ef vel tekst til með risasamninginn er líklegt að Tulipop springi út fyrir alvöru á næstu þremur til fjórum árum.