Risalækkun kristjáns þórs: veiðigjöld lækka um 30% - „á meðan deyr fólk á spítölum“

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra hefur lækkað veiðigjöld um 30 prósent á milli ára. Á árinu 2020 eru áætlaðar tekjur 4.850 milljónir króna. Í fjárlögum síðasta árs 2019 voru tekjurnar áætlaðar 7 milljarðar króna. Lækkunin er rúmir tveir milljarðar.

Á vef Bæjarins besta er bent á að tekjur af veiðigjaldi árið 2018 urðu 11.417 milljónir króna samkvæmt því sem fram kemur í ríkisreikningi. Tekjurnar á þessu ári sem eru áætlaðar eru því aðeins 42% af tekjunum frá 2018. Er það lækkun upp á 6.5 milljarða.

Hefur þessi risalækkun ríkisstjórnarinnar upp á milljarða króna verið harðlega gagnrýnd á samfélagsmiðlum. Er lækkunin sett í samhengi við að á meðan skorið sé niður hjá lífeyrisþegum, eldra fólk sé fast í fátækragildru og „fólk að deyja á spítölum“ og langir biðlistar vegna manneklu séu  Sjálfstæðismenn að lækka gjald á útgerðina.

\"\"