Afþakka risahótel á þingvöllum

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar lagðist á fundi sínum í síðustu viku einhuga gegn áformum um stórfellda ferðþjónustuuppbyggingu á jörðinni Skálabrekku, sem liggur að þjóðgarðinum á Þingvöllum.

Oddvitinn segir að hugmyndirnar um þessa uppbyggingu svona nærri þjóðgarðinum séu einfaldlega of stórar og miklar til að passa inn í landslagið. Þetta sé líka inni á vatnsverndarsvæði Þingvalla.

Áformin um uppbygginguna voru fyrst kynnt í október. Byggja átti í fimm áföngum: Fyrst 120-160 herbergja lúxushótel ásamt heilsulind, sundlaug og veitingastað, síðan þjónustumiðstöð með tjaldsvæði, svo tveggja til þriggja stjörnu ódýrara hótel, því næst heilsársbústaði, íþróttasvæði og gróðurhús og loks 18 holu golfvöll.

Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar sagði í samtali við RÚV að ekki væri alfarið lagst gegn uppbyggingu landeigenda en að hugmyndirnar yrðu að vera smærri í sniðum. Auk þess þurfi þeir að ræða betur við umhverfisyfirvöld vegna vatnsverndarsjónarmiða.

Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur, sem hefur verið talsmaður landeigenda í verkefninu, sagði í viðtali við RÚV í haust þegar verkefnið var fyrst kynnt að eigendur hefðu áhuga á að taka tillit til allra hugmynda sem fram kæmu og mæta hugsanlegri gagnrýni á framkvæmdirnar.