Rio: borgarfulltrúi og baráttukona myrt

Tugþúsundir Brasilíumanna hafa safnast saman í sjokki á götum Rio de Janeiro og fleiri borgum til að að syrgja og mótmæla morði á Marielle Franco, borgarfulltrúa í Rio, sem hafði barist gegn lögregluofbeldi.

Marielle Franco var 38 ára og ötul kvenréttindakona og hyllt sem slík. Hún og bílstjóri hennar voru skotin til bana í bíl hennar á miðvikudag.

Michel Temer, forseti Brasilíu segir morðið vera árás gegn lýðræði og lögstjórn í landinu. Öryggismálaráðherra landsins, Raul Jungmann, segir ríkisstjórnina ætla að gera allt sem hægt er til að finna morðingjana, sem skutu Franco fjórum skotum í höfuðið og bílstjórinn fékk í sig þrjú skot. „Við munum finna þá og refsa þeim fyrir þennan villimannslega glæp,“ sagði Jungman.

Marielle Franco var kosin í borgarstjórn Rio 2016 og fór þar með málefni kvenna. Hún var fulltrúi vinstri manna í Sósíalista- og frelsisflokknum. Hún hafði gagnrýnt harðlega framgöngu og ofbeldi örggissveita hersins í fátækrahverfum og þá stefnu að beita öryggissveitunum yfirleitt við hlið lögreglu.

Nú síðast á þriðjudag skrifaði hún Twitterfærslu um dráp 23 ára manns sem foreldrarnir töldu öryggissveitirnar bera ábyrgð á.

Í annarri færslu lýsti Franco samstöðu með íbúum fátækrahverfisins Acari:

„Það sem er að gerast í Acari er fáránlegt! 41. sveit herlögreglunnar er þekkt sem dauðasveitin. Nú er nóg komið af yfirvöðslu og drápum á ungu fólki! Við erum öll Acari, hættið að drepa okkur!“