Ríkisvaldið stelur hugverkum höfunda

Ríkisstofnun tekur ófrjálsri hendi ritverk höfundar, afritar það og afhendir ókeypis þeim sem vilja.Hljómar þetta ótrúlega? Já, en það er staðreynd samt.

Jónas Sigurgeirsson útgefandi nefnir dæmi um þetta í grein í Morgunblaðinu í gær. Jónas stýrir Almenna bókafélaginu, sem gaf nýlega út bók norður-kóreska rithöfundarins Yeonmi Park, Með lífið að veði.

Skömmu eftir að bókin kom út hafði Hljóðbókasafn Íslands látið lesið hana inn og gert aðgengilega á vef sínum endurgjaldslaust. Hún hefur síðan verið þar mjög ofarlega á vinsældalista.

Park á höfundarrétt að bókinni og Penguin Books á útgáfuréttinn, en ríkisstofnunin Hljóðbókasafn hefur þó enga tilraun gert til að hafa samband við þau, hvað þá að leita samninga um útgáfu og dreifingu.

Notendur Hljóðbókasafnsins eru nú um 10 þúsund talsins og fer hratt fjölgandi. Mun fleiri hafa líklega aðgang að bókakosti safnsins þar sem auðvelt er og einfalt að dreifa honum og/eða hljóðskrám í tölvupósti.

Í grein sinni nefnir Jónas nýleg dæmi þess að fólk skilaði bókum, sem það fékk í jólagjöf, af því að það hafði þegar ókeypis aðgang að þeim í Hljóðbókasafninu.

í haust kom fram að bóksala hefur snarminnkað á Íslandi á undanförnum árum. Sumir hafa kennt um hækkun virðisaukaskatts, en Jónas færir fyrir því sannfærandi rök í grein sinni að þjófnaður ríkisins á hugverkum og síðan ókeypis dreifing sé líklega ekki minni sökudólgur.