Ríkisstyrktum dýraníðingum útrýmt

Mikilvægt er að skerða eða afleggja ríkisgreiðslur til þeira bænda innanlands sem staðnir hafa verið að dýraníði.

Þetta segir Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar.

Búvörulögin fyrirhuguðu verða rædd á Alþingi eftir páska. Brynhildur segir að fyrirhugað ákvæði þegar lög um dýravernd voru samþykkt um að opinberar greiðslur dyttu niður ef bændur væru sannaðir að dýraníði, hefði fallið út úr lögunum. Ákvæðið hefði ekki hlotið náð með vísan til þess að þá þyrfti jafnframt að breyta búvörulögunum.

Nú er tækifæri til þess að mati Brynhildar. Þótt samtöl við hagmunaaðila bendi til að sátt geti náðst um réttlætisbótina geti íhaldssemi leynst víða. Brýnt sé að festa í lög að skerða beri greiðslur til bænda sem standi að dýraníði.