\"Nú ætti Alþingi Íslendinga að sjá sóma sinn í að afnema ríkisstuðninginn við KSÍ og fleiri stöndug samtök, sem greiða forystumönnum ofurlaun,\" segir Eiður Guðnason, fyrrum ráðherra, þingmaður og sendiherra.
Þessi ummæli lætur Eiður falla vegna fréttar Rúv um ofurlaun æðstu toppa hjá KSÍ. Formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson og framkvæmdastjóri eru með svipuð laun og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra.
Ríkisstuðningurinn sem Eiður ræðir er fólginn í lögbundnu einkaleyfi til lottóreksturs til langs tíma. \"Þorir einhver þingmaður að ríða á vaðið og koma með slíka tillögu? Það eiga fleiri samtök að njóta góðs af þeirri peningamaskínu sem lottóið er. Hvað með langveik börn? Kannski mætti líka láta aldraða og hjúkrunarheimili njóta góðs af?\" Spyr fyrrum þingmaðurinn, Eiður Guðnason.
Ríkisstuðningur við ksí skuli afnuminn
Fleiri fréttir
Nýjast