Ríkisstjórnin neitar allri ráðgjöf

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ráðast verði í miklar kerfisbreytingar til að gera Ísland almennilega samkeppnishæft, en vandinn sé þessi \"Þær eru oft erfiðar vegna sérhagsmuna.\"

Þetta skrifar hann í niðurlagi nýjasta pistils síns á hringbraut.is sem fjallar að öðru leyti um þá þversögn að gömlu flokkarnir, sem komið hafa Íslandi út úr kreppunni, eru sjálfir í kreppu.

Vandinn við að breyta bæta efnahagsumhverfi Íslands er að sögn Þorsteins sá að verkefnið er ekki endilega fallið til vinsælda. En, umræðuna verði að taka, þó ekki sé annað því alls staðar í samfélaginu sé kallað eftir ríkari gæslu heildarhagsmuna og skarpari framtíðarsýn.

Hann minnir í þessum efnum á varnaðarorð Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu, OECD, um Ísland: \"Þar er sterklega vakin athygli á að við erum eftirbátar grannþjóðanna í framleiðni. Meðan svo er verðum við líka eftirbátar í lífskjörum.\"

En framleiðni sé ekki leiftrandi hugtak í almennri umræðu: \"En það er eigi að síður lykillinn að bættum lífskjörum á varanlegum grunni,\" skrifar Þorsteinn og bendir á að uppsveiflan núna  byggist á innflutningi á erlendu fólki í láglaunastörf í ferðaþjónustu sem leggi lítið til aukinnar framleiðni: \"Á sama tíma missum við menntað fólk til útlanda af því að Ísland er ekki samkeppnishæft um störf sem skila hærri launum.\"

Hann segir að launahækkanir sem ekki sé innistæða fyrir breyti engu um þetta til lengri tíma.

Hann lofar menntamálaráðherra fyrir að vera eina ráðherrann sem virðist hafa einhverja framtíðarsýn með þeim kerfisbreytingum sem hann vinni nú að í skólakerfinu, en þær séu beint svar við óskum OECD, en hjá aðrir ráðherrar horfi í gaupnir sér: \"Á sviði peningamála hefur stofnunin frá 2013 ráðlagt Íslandi að skoða upptöku evru. Það er álit stofnunarinnar að með slíkri kerfisbreytingu megi auka stöðugleika, lækka vexti og auka framleiðni;\" bendir Þorsteinn á.

Meinið sé eftirfarandi: \"Ríkisstjórnin telur aftur á móti mikilvægara að standa vörð um hagsmuni þeirra fyrirtækja sem nota erlenda mynt en vilja ekki að aðrir geti gert það sama. Forystumenn beggja stjórnarflokkanna geirnegldu þessa afstöðu í umræðunni.\"

Lærdómurinn af stefnuræðu forsætisráðherra í vikunni sé því býsna alvarlegur: \"Á sviði peningamála eru þeir fordómar sem byrgt hafa mönnum framtíðarsýn á varanlega viðreisn ekki á förum.\"