Ríkisstjórnin kolfallin skv. könnun

Ríkisstjórnin er kolfallin skv. nýrri könnun 365. Stjórnarflokkarnir fengu aðeins 26 þingmenn nú en eru með 38.

Sjálfstæðisflokkurinn heldur nánast sínu og eru næststærsti flokkurinn en aðeins fimm þingmenn Framsóknarflokksins kæmust á þing ef kosið yrði nú miðað við fylgiskönnunina. Þar af eru tveir í Norðausturkjördæmi, annar er formaður flokksins og hinn fallni forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Framsókn fengi engan mann í Reykjavík.
Píratar eru nú stærstir þótt fylgi við þá dragist saman milli kannana, þeir fengju 22 þingmenn kjörna. Sjálfstæðisflokkurinn fengi 21 þingmann kjörinn, Vinstri grænir níu, Samfylkingin sex og Framsóknarflokkurinn fimm. Allit þingmenn Bjartrar framtíðar myndu þurrkast út.

Grétar Þór Eyþórsson prófessor í stjórnmálafræði segir í samtali við Fréttablaðið í dag um könnunina að fylgi sé á nokkurri ferð en að VG sé að styrkja stöðu sína.