Enn ein skoðanakönnunin hefur verið birt sem mælir fylgi stjórnarflokkanna þannig að þeir hefðu ekki meirihluta á Alþingi til að mynda ríkisstjórn.
Fylgi Sjálfstæðisflokks er nær óbreytt frá kosningunum fyrir ári. Hann héldi 16 þingmönnum. Vinstri græn tapa rúmlega þriðjungi fylgis síns frá kosningunum, fengi 10.6% samkvæmt könnuninni og 7 þingmenn í stað 11. Framsókn tapar einnig þriðjungi fylgis, fengi 7.2% og 4 menn kjörna.
Þannig hefði ríkisstjórnin einungis 27 þingmenn á bak við sig og tapaði 8 mönnum frá kosningunum. Stjórnarandstaðan fengi 36 menn kjörna á Alþingi samkvæmt könnun Gallup sem unnin var allan októbermánuð.
Fylgi og þingmannafjöldi breytist ekki frá kosningum hjá Flokki fólksins, Sjálfstæðisflokki og Miðflokki. Vinstri græn og Framsókn tapa samtals 8 þingmönnum en Samfylkingin bætir við sig 4 þingsætum, Viðreisn 3 og Píratar 1.
Viðreisn er orðin þriðji stærsti flokkurinn miðið við könnun Gallups með 10.8% fylgi, aðeins meira en Píratar og Vinstri græn sem mælast með 10.6%.
Ríkisstjórnin kolfallin samkvæmt gallup
Fleiri fréttir
Nýjast