Annarri umræðu fjárlaga lýkur loksins í dag eftir að umræðumetið frá 2012 þegar framsóknar- og sjálfstæðisþingmenn töluðu meira en nokkru sinni, en í ár snerist dæmið við og vinstriflokkarnir tóku fram úr fyrra meti.
Í tilefni af lokum umræðunnar sendi Samfylkingin frá sér tilkynningu síðdegis þar sem gerð er grein fyrir þátttöku hennar í fjárlagaumræðunni, en þar segjastv þingmenn flokksins hafa barist fyrir bættum kjörum eldri borgara og öryrkja og að þeir verði ekki skildir eftir eins og í tillögum ríkisstjórnarinnar.
\"Samfylkingin berst fyrir því að Landspítalinn fái þau framlög sem yfirstjórn hans hefur talið nauðsynleg. Verði framlög ekki hækkuð, eru það sjúklingar sem gjalda dýru verði fyrir atlögu ríkisstjórnarflokkanna gegn þjóðarsjúkrahúsinu. Samfylkingin vill ekki að framlög til Ríkisútvarpsins verði skert heldur fái það nægjanlegar fjárveitingar til að standa undir þjónustu við almenning um allt land. Nú við lok umræðunnar er orðið ljóst að ríkisstjórnin hefur engin áform um að taka til baka svik sín við aldraða og öryrkja, né heldur að verja Landspítalann eða rétta hlut Ríkisútvarpsins. Ríkisstjórnin hefur kastað grímunni,\" segir í tilkynningunni.
Og klikkt er út með þessum orðum: \"Samfylkingin mun áfram berjast fyrir bættum kjörum eldri borgara og öryrkja ásamt auknum framlögum til heilbrigðismála. Við munum nýta þau tækifæri sem gefast við umræður og atkvæðagreiðslur á Alþingi til að knýja fram afstöðu einstakra stjórnarþingmanna til þessara lykilmála.\"