Ríkisstjórnin hefur engan áhuga á iðnaði

 Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, vék m.a. að því í ræðu sinni á Iðnþingi á fimmtudag að ekki væri minnst einu orði á IÐNAÐ í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar. Orðrétt sagði Guðrún um þetta:

“Ég er líka mjög hugsi yfir því að í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar frá því í desember er ekki minnst einu orði á iðnað. Orðið “iðnaður” kemur ekki fyrir í gjörvöllum sáttmálanum. Það eru sérstakir kaflar um landbúnað, sjávarútveg, ferðaþjónustu og fjármálakerfið. En ekki eitt orð um iðnað þrátt fyrir að iðnaður á Íslandi skapi nær 30% landsframleiðslunnar, skapi rúmlega þriðjung gjaldeyristekna og að einn af hverjum fimm á vinnumarkaði starfi við iðnað.”

Ætla má að aldrei fyrr í sögu lýðveldisins á Íslandi hafi verið skrifaður stjórnarsáttmáli ríkisstjórnar án þess að fjallað væri um iðnað, þessa miklu undirstöðuatvinnugrein Íslendinga.