Segja má að ríkisstjórnarflokkarnir hafi misst meirihluta þingmanna á Alþingi samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Könnunin var gerð 2. til 31. maí.
Um mjög stórt úrtak er að ræða, 7.113 manns. Svarhlutfall 56.6% þannig að meira en fjögur þúsund svör bárust.
Stjórnarflokkarnir fengju 31 þingmann en stjórnarandstaðan 32 þingmenn. Gengi þetta eftir væri stjórnin fallin.
Flokkur fólksins kæmi ekki manni að og því fækkaði um einn flokk á Alþingi.
Samkvæmt könnuninni ættu þingsæti að skiptast þannig: Sjálfstæðisflokkur 16, VG 9 og Framsókn 6. Samtals 31.
Stjórnarandstaðan: Samfylking 12 þingsæti, Píratar 9, Miðflokkur 6 og Viðreisn 5. Alls 32 þingsæti.
Miðað við þessa útreikninga væri ríkisstjórnin fallin.
Ríkisstjórnin tapar enn og aftur fylgi
Fleiri fréttir
Nýjast