Ríkisstjórnin getur alls ekki hugsað sér að fólk borði það sem það vill án sérstaks leyfis: nákvæmlega sama um neytendur

„Í liðinni viku bárust þær fréttir að sameiginlega EES-nefndin hefði samþykkt beiðni mína um heimild fyrir Ísland til að beita reglum um svokallaðar viðbótartryggingar varðandi salmonellu vegna innflutnings á svína- og nautakjöti. Þessar fréttir koma í kjölfarið á því að í upphafi þessa árs fékk Ísland heimild til að beita sambærilegum reglum gagnvart innfluttu kjúklingakjöti, kalkúnum og eggjum. Í tryggingunum felst að við innflutning á þessum matvælum skal alltaf fylgja vottorð sem sýnir að salmonella hafi ekki greinst í viðkomandi vörusendingu. Án slíks vottorðs verður innflutningur ekki heimilaður en nágrannalönd Íslands hafa haft þessar heimildir um árabil.“

Þannig hefst pistill eftir Kristján Þór Júlíusson, landbúnaðarráðherra Sjálfstæðisflokksins. Þá sagði Kristján Þór einnig:

„Þessi heimild Íslands er afskaplega ánægjulegur og mikilvægur áfangi og er afrakstur mikillar vinnu sem ráðuneyti mitt hefur leitt í samstarfi við Matvælastofnun. Á þessum skamma tíma hefur okkur tekist að tryggja sömu varnir og við höfum haft um árabil varðandi salmonellu.“

Benedikt Jóhannesson, einn stofnanda Viðreisnar svarar Kristjáni á fésbókar-síðu sinni. Benedikt segir Kristján stæra sig af því að afnema „hið ólögmæta leyfisveitingarkerfi þann 1. janúar næstkomandi.“ Benedikt segir sjónarhorn Kristjáns athyglisvert og þá sérstaklega að hann sé ánægður með nýtt hafta-, leyfa- og skömmtunarkerfi. Benedikt segir að í pistlinum tali Kristján um:

„Þrisvar talar hann um reglur
Þrisvar um vottorð
Þrisvar um varnir
Sex sinnum um að tryggja eða tryggingar
Sjö sinnum um heimildir
Einu sinni um kröfu
Fjórum sinnum um kerfi
Einu sinni um skilyrði
Fimm sinnum um leyfi eða leyfisveitingar
Tvisvar um vernd búfjárstofna“

Allt þetta kemur fram í aðeins tæplega þrjú hundruð orða grein. Benedikt heldur áfram:

„Aldrei talar ráðherrann um almenning.
Aldrei talar ráðherrann um neytendur.
Aldrei talar ráðherrann um gæði.“

Kristján Þór vill að mati Benedikts, fyrst og fremst verja landbúnaðarkerfið. Hann segir:

„Ríkisstjórninni er nákvæmlega sama um neytendur og heldur stolt áfram ólöglegu kerfi til áramóta. Þá tekur nýtt leyfakerfi við. Ríkisstjórnarflokkarnir geta alls ekki hugsað sér að fólk borði það sem það vill án sérstaks leyfis,“ segir Benedikt og bætir við að lokum:

„Það er kominn tími til þess að blása til sóknar fyrir neytendur, efla almannahag og hætta að vernda sérhagsmuni.“