Ríkisstjórnin fengi einungis 30 þingmenn og væri því fallin

Ríkisstjórnin mælist með meira fylgi en sjálfir ríkisstjórnarflokkarnir - eins furðulegt og það virðist vera. Flokkarnir þrír fengju aðeins 30 þingmenn kjörna ef kosið yrði núna samkvæmt könnun Gallups sem unnin var allan aprílmánuð.

Stuðningur við ríkisstjórnina mælist 52% en stuðningur við ríkisstjórnarflokkana mælist samtals tæp 45%. Þeir tapa allir fylgi frá kosningunum 2017, samtals 5 þingmönnum og þar með væri stjórnin fallin en 32 þingmenn þarf til að mynda meirihlutastjórn eins og kunnugt er.

Sjálfstæðisflokkur fengi 23% samkvæmt könnuninni og 16 þingmenn. Samfylking hlyti 16% og 11 þingmenn, Vinstri græn 13% og 9 þingmenn, Viðreisn og Píratar fengju 11% og 8 þingmenn hvor flokkur. Miðflokkur væri með rúm 8% og 6 þingmenn og Framsókn með innan við 8% og 5 menn kjörna.

Flokkur fólksins og Sósíalistaflokkur Íslands kæmu ekki mönnum á þing.

Athygli vekur að Evrópusinnaðir flokkar, Samfylking, Viðreisn og Píratar, bæta stöðugt við sig fylgi og fengju nú samtals 27 þingmenn kjörna í stað 17 í kosningunum 2017. Hafa bætt við sig 10 þingsætum, Samfylking 4, Viðreisn einnig 4 og Píratar 2.